Veggdagatal með orðaperlum 2027 - A4 stærð.
Gullfallegt veggdagatal með reitum að skrifa í til minnis.
Stemningarljósmyndir og orðaperlur Kristínar S. Bjarnadóttur prýða dagatalið og miðla notalegri stemningu til innblásturs út allt árið. Gömlu mánuðirnir og tunglgangurinn eru einnig í dagatalinu.
Augnakonfekt til að eiga eða gefa og létt að senda í bréfpósti hvert í heim sem er.
Ath! Dagatalið er á gormi þó hann komi ekki fram á myndunum.