Ilmkerti

Dásamlegt ilmkerti með lífrænum ilmkjarnaolíum úr sedrusviði og garðamyntu. Áhrifin eru því bæði róandi og frískandi í senn. 

Kemur í fallegu hvítu kertaglasi með viðarloki. Framan á glasi er blómamynd með hluta úr orðaperlu Kristínar S. Bjarnadóttur í fallegum ramma:

"Megi logandi ljósið lýsa, alltaf þegar á þarf að halda"

Kertið er handgert fyrir Blúndur og blóm hjá Starfsendurhæfingu Bjargs/Iðjulundar á Akureyri.